Prófíll

  • Nafn: Sigríður Inga Viggósdóttir
  • Staður: Sauðárkrókur

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Look Cool Riding Anything Funny Images, This is why I don't ride public transportation Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right

Leikur dagsins

Leit

Ég skal segja ykkur það!!

14. ágúst 2007 klukkan 23:27
Jæja kannski maður skelli bara inn einu bloggi eða svo. 
Fyrst vil ég byrja á því að óska þeim Ósk og Axel til hamingju með frumburð sinn. Þetta var stærðarinnar strákur sem fæddist 07.08.07. Hann var 5335gr. Og 58cm eða um 21,5 merkur. Já það er jú best að gera þetta almenilega. Myndin hérna er af honum og svo eru fleiri myndir á myndir 3 hérna vinstrameginn. Hann er svo sætur þetta litla krútt? 
Annars er það af mér að frétta að ég er náttúrlega komin heim eins og allir vita. Er að vinna í Landsbankanum og það er bara mjög fínt og ég verð þar næsta árið.

Sumarið er búið að líða svo ótrúlega hratt og það er búið að vera svo mikið að gera. Ég er bara búin að vera upptekin hverja helgi síðan ég kom heim þangað til síðustu helgi. Get ekki neitað því að það var asskoti ljúft að slappa af og gera ekki neitt. 
Það sem stendur upp úr sumarinu er klárlega fæðing litla prinsins. 
En í skemmtanalífinu er Þjóðhátíð í Vestmaneyjum ?? já það er hreinlega ekki hægt að lýsa því hversu gaman það er á þjóðhátíð. Þannig að ég ætla ekkert að byrja á því. Þetta var önnur þjóðhátíðin mín og var hún engu síðri en sú fyrsta 2001. Geggjað veður í bæði skiptinn. En ég kom raddlaus heim og það er ekki gott þegar maður vinnur við það að svara í síma? hræðilegt! 
Íslenska mafían kíkti í heimsókn til mín í júlí og fórum við í Rafting og vorum full. Þetta var snildar helgi og bíð ég spennt eftir næsta hitting. 
Vonbryggði sumarsins voru þau samt að ég komst ekki í Kiddaferðina í ár? en það er víst ekki hægt að vera alstaðar. Það verður bara enn skemmtilegra í næstu ferð? 
Jæja ég held að þetta sé bara komið fínt núna í bili. Ég ætla ekkert að lofa neinu bloggi. 
Það kemur bara þegar það kemur? 
Kv. SIV
Sigríður Inga Viggósdóttir
6 athugasemdir

Það er komið sumar!!!!!!

01. maí 2007 klukkan 22:17

Ég skal segja ykkur það börnin mín… ég veit ekki hvaða dugnaður hefur hlaupið í mig í dag. Haldið þið að ég hafi ekki verið að henda inn myndumJ já takk fyrir takk.! Er þetta myndasíða 2 og inniheldur hún meðal annars þá fábæru ferð til Lundúna.

Annars er bara allt gott að frétta úr Baunalandinu alltaf sama bongoblíðan hérna.

Það var svaka djamm hérna um helgina. Tók kanski aðeins of mikið á þvíJ  En það var rosa stuð.

Á föstudaginn er svo stefnan tekin á hesta mót í Herning til að hvetja Ingveldi til sigurs í fjórgangiJ Á nú góðar minningar þaðan síðan á HM. Kannski maður steli hjóli og sólhlífJ

Á laugardaginn er svo stefnan tekin til AAlborg á mina fyrstu tónleika og er það engin önnur en Béyonce sem er að fara að láta mann hrista af sér bossan. Verð náttúrlega að reyna að fylgja henni eftir. Sem verður náttúrlega lítið mál fyrir mig og minn rassJ

Það er aldeilis farið að stittast í það að maður komi heim. 33 dagar þangð til maður birtist á KróknumJ Ég er búin að fá vinnu í Landsbankanum á Króknum fram að hausti 2008JJ gaman gaman. Fólk er samt víst mis ánægt með þessa ákvörðun…veit um nokkra í borg óttans sem eru ekkert rosaglaðir. En ég verð dugleg að koma í heimsókn ég lofa.

En jæja nenni ekki að skrifa meira er orðin svo þreytt ætla að fara að sofa í hausin á mér eins og einhver orðaði það.

Ps. Þið sem eruð að svíkjast undan að lesa undir próf og eruð að drepa tíman með því að skoða veraldarvefin. Gangi ykkur rosa vel í prófumJ úff hvað það er gott að vera ekki í þessum fjandaJ

Baunalandið kveður að sinni með bros á vörJ

Sigríður Inga Viggósdóttir
13 athugasemdir

Náið ykkur í popp og kók áður en lesning hefst. Því þetta er helv... langt:)

18. apríl 2007 klukkan 15:27

Úppsssss já ég veit skamm skamm. Svona er þetta bara á stóru heimili. Þegar mikið er að gera í ferðalögum og öðrum störfum þá er ekki tími til þess að sitja fyrir framan tölvuna heilu og hálfu dagana og leika sérJ

En ég skal bæta ykkur þetta upp núna með löngum og góðum pistil. Þannig að í guðanna bænum komið ykkur vel fyrir.

Fyrst vill ég náttúrlega byrja á því að óska Þorbergi og Birnu til hamingju með litla prinsinn þeirra hann Valdimar Árna. Það verður nú gaman að koma heim og sjá fjölskylduna.

Það allra merkilegast sem hefur komið upp á í lífi mínu þennan síðasta mánuð var klárlega þegar ég fór til London. Það var nú aðeins verslað, farið á fínan klúbb út að borða. Vorum nú stundum svoldið leyðinleggir viðskipta vinirJ Ég meina maður er náttúrlega ekki að sætta sig við eitthvað sem er ó étandi.

En það sem gerið þessa ferð svo ógleymanlega var þegar við stöllur gerðumst túristar. Skelltum okkur í tveggja hæða rauðan túrista bus. Sáum allar þessa helstu staði. Svo var okkur nú aðeins farið að leiðast að sjá allar þessar byggingar og vorum orðnar hræddar um að myndaalbúmið yrði frekar leiðinlegt að skoða. Þannig ég og Margrét gripum náttúrlega til okkar ráða og fórum að láta eins og fíffl og fávitar. Já trúið mér við erum rosa góðar í því. Við fórum semsagt að öskra jjjjjhhhúúuúúú á gangandi vegfarendur og þá litu þau náttúrlega á okkur og þá smelltum við af myndafélinniJ hérna kemur eitt dæmi

AppleMark

hehe er hann ekki sæturJ

Við vorum náttúrlega að kafna úr eigins fyndni og vorum ekki að fá nóg af þessu og skemmtu nú flestir ferða félagar okkar sér konunglega. Það er nú ekki hægt að segja það sama um blessaðan rútubílsstjóran. Hann var því miður eitthvað illa upplagður maðurinn. Get nú alveg ímyndað mér að það taki á að keyra sama rúntinn dag eftir dag. EN allavegana þá kom kallin upp og bað okkur vinsamlegast um að hætta þessu JJJJhhhhúúúú dæmi því þetta væri frekar pirrandi. Vorum náttúrlega við það að kafna eftir þessa athugasefnd. HEHEHE vitleysingar… en við nentum nú ekki að hanga þarna mikið lengur hjá  þessari fýlutotu. Þannig að við hoppuðum af hjá höll Betu drottningu. Og það var þá sem það gerðist dagurinn 12. Mars um kl.15 dagur sem við eigum aldrei eftir að gleymaJ við vorum að rolta þarna í mestu makindum og taka myndir og svona eins og túristar gera. Sjáum við svo fullt af fólki standa við hliðið og það er opið. Og þar sem við erum nú frekar forvitnar maneskjur eða allavegana ég þá ákváðum við nú að kíkja á hvað væri á seyði. Fólk vissi nú ekki alveg eftir hverju það var að bíða en hélt að Beta væri að koma út. Við náttúrlega biðum bara spenntar og vonuðumst til að svo væri og rifum upp myndafélarnar ef ské kynni að hún myndi koma. Og viti menn eftir svona 5 mín þá kemur sjálf Elísabet Eingladsdrottning út frá höllinni sinni og við túristarnir náðum mynd J

AppleMark

Jájá elskurnar mínar þessi líka fína mynd af henni vinkonu minni. Var svo að heyra það í fréttunum að Villi prins sé komin á laust. Það er náttúrlega pottþétt af því að amma hans sá mig og sagði honum frá þvíJ

Þetta var alveg magnaðJ já maður getur verið skrítinn.

Þetta var svo sannarlega oplevelsi eins og maður segjir hérna í baunalandinu. EN greyið danirnir sem voru með okkur voru nú ekki svo frægir að sjá hana Betu því þeir eru náttúrlega svo nískir að þeir tímdu sko ekki að borga svona mikið í túristabusJ GOTT Á YKKUR.

Annars var þessi London ferð bara snild út í eitt og á ég seintt eftir að gleyma henni. Fórum á Lion King og Vá hvað það var gaman og ekkert smá flott maður.

Svo fengum við náttúrlega æðislegt veður og við Margrét þurftum að kaupa okkur sólgleraugu svo við myndum nú hreynlega ekki skaðbrenna í augunumJ

AppleMark

(hér má sjá sólgleraugun + svona var stuðið á okkur í túrista bus. Þeir sem þekkja okkur ættu að geta ímyndað sér þetta)

Ekki má nú gleyma sögunni frá því ég og Margrét ætluðum á pöbbinn. Það var sunnudagskvöld og okkur langaði í bjór kl. Var gengin langt í eða rétt yfir miðnætti en þar sem við vorum nú í London vorum við nú ekkert að velta því fyrir okkur hvort hverfis barin væri opin eða ekki. Svo þegar þangað var komið var allt harðlæst. Þannig að við ákáðum að rölta lengra niður götuna en allt var lökað. En svo mundum við eftir einum vatnspípu stað sem var ofar í götunni og var opin. Við ákváðum því að fara þangað. Þegar við röltum svo inn þá var klappað fyrir okkur. Voru ekki margar stúlkur þarna inni. Vó mökkurinn sem tók á móti okkur. Jæja við settumst þarna út í horn og allir störðu á okkur. En skyndilega fórum við að evast um það að það væri hægt að kaupa bjór þarna inni. Sem var svo raunin. Góðar heheh hvernig áttum við að vita hvernig svona staðir virka?? Það er engin svona staður í firðinum fagra.

Svo bjuggum við á 15 kakkalakka stjarna hóteli. Þetta var ógeðslegt. Nenni ekki einu sinni að byrja að segja ykkur frá þessum viðbjóð. Þetta var bara út um allt herbergi.

En enn og aftur þá var þetta snildar ferð og vil ég þakka Kristínu, Margréti og Sillu kærlega fyrir Svakalega vel hepnaða ferðJ

Eftir London tók svo við skóli, djamm og daglegt líf.

Svo 1. Apríl þá lá leiðin til Austuríkis á skíði. Var þetta 4 vikan mín á skíðum í AUS þennan veturinn. Alls ekki leiðinlegt verð ég að segja. Við fengum GEÐVEIKISLEGA gott veður og tala ekki um færið. Við erum að tala um púður snjó og læti þetta var bara eintóm snild.

AppleMark

Ég kom svo heim á páskadag brún og sælleg og aðeins brunnin í augunumJ

Ég var nú ekki lengi að rífa upp páskaeggið mitt sem mútta hafði sent mér. (takk fyrir það móðir góð). Ingveldur var í heimsókn, kom til Kristínar á föstudeginum og fékk frí á mánudeginum. Þannig að við skelltum okkur á tjúttið. Byrjuðum á því að fara í mat til Elínar Maríu. Ooo hvað það var gott að fá góðan mat. Svo var ekkert annað í stöðunni en að skella í sig öl því ekki ætluðum við nú að hafa þetta alveg alkahóls lausa páskaJ Þetta reyndist svo vera þetta líka svakalega skemmtilega djamm. Það var nú ekki margir staðir opnir. Fórum því á subbubari sem er snild verð ég að segja. Lærðum spilið mæ og var okkur hennt út af tveimur börum. Ekki vegna óláta heldur vegna þess að það var verið að loka. Fyrri barain um 3 leytið og seinnu um 6J Sem sagt magnað kvöld og vil ég bara þakka öllum fyrir gott djamm.

AppleMark

 

 

 

Þetta var rosalegur tappiJ

Um síðustu helgi fór ég svo til Ingveldar í heimssókn. Það var steikjandi hiti hérna í baunalandinu þessa helgina og var maður svo sannarlega í sumarskapinu með sólgleraugun á nefinuJ

Við Veldan vorum bara að moka út skít og sinna bústörfunumJ skelltum okkur í reiðtúr á sunnudeginum meðfram ströndini og sáum þar fólk í öðrum reiðtúr en við vorum í .

Skelltum okkur svo á djammið í Ebeltoft á lau. Það var svo sannarlega oplevelse útaf fyrir sig. Hittum þar dreng sem þóttist vera atvinnu maður í knatspyrnu. Hann var á samning hjá Ebeltoft. Ég þurfti nú að berjast við að halda aftur að mér var við það að kafna úr hlátri. Ímyndið ykkur að Villhjálmur Árnasson væri atvinnumaður í knatspyrnuJ Ekkert illa meint Villi minnJ Bara svo þið fáið smá mynd á þettaJ

Annars fínasta djamm.

EN jæja já er þetta ekki bara að verða komið gott hjá mér. Annar eins dugnaður hefur ekki sést hérna á síðunni. Myndir með bloggi og læti.

Vona að einhver nennti að lesa þetta til endaJ

Kiss kiss.

Kv.SIV

 

 

 

Sigríður Inga Viggósdóttir
Almennt | 8 athugasemdir

London baby London:)

09. mars 2007 klukkan 22:14

Jæja þá er maður að fara að skella undir sig betri fætinum og skella sér til London. Fer í fyrramálið(lau) af stað. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég fer til London þannig að ég get ekki neitað því að það sé spenningur í manni.

Það er semsagt ferðavika í skólanum núna næstu viku og er ég að fara með um 20 krökkum úr skólanum og Margréti Helgu hún er að koma með okkur SNILDJ Svo eru aðrir úr skólanum að fara í fótboltaferð til þýskalands og handboltaferð líka til þýskalands, skíðaferðir til noregs. Útivistarhópurinn era ð fara á gönguskíði að gista í snjóhúsum í viku en svo eru líka nokkrir sem eru bara að fara á skíði þangað. Guð sé lof að ég sé ekki lengur í útivistarhópnumJ

Elfar bróðir var svo hjá mér í síðustu viku kom á lau. Og fór á mið. Það var svo ótrúlega gaman að fá þennan litla kút í heimsókn. Já ég veit hann er ekki lítill lengurJ Það var svaka stuð hjá okkur gerðum margt skemmtilegt. Og auðvita fórum við í búðir og drengurinn keypti sér fullt af fötum.

Ég var svo að koma neðan úr bæ var úti að borða með Ingveldi, mömmu hennar, systir og bróður. Svaka gaman að hitta þau. Hlakkar til þegar mamma og pabbi koma til mín. Getur líka verið að Hrundarinn kíki í maí. Einhverjir fleiri sem ætla að kíkja í heimsókn???? Allir velkomnir.

En jæja það er best að klára að pakka fyrir LondonJ

Heyri í ykkur seinna.

Kv. SIV

Sigríður Inga Viggósdóttir
Almennt | 10 athugasemdir

Eru ekki allir hressir???

02. mars 2007 klukkan 17:02

Djöfull líður tíminn maður. Það er komin föstudagur og það er orðið allt of langt síðan ég hennti inn bloggi.

Síðasta helgi var snild og ég vildi að krakkarnir væru hérna ennþá. Það var æðislegt að hitta þau öll aftur. Ég var nú samt með mina frábæru eyrnabólgu og var komin á pensilín og alles en maður reyndi að bera sig vel. Skemmti mér konunglega edrú. Já þetta getur maðurJ Ég er samt öll að koma til núna og er orðinn miklu betri í eyunum og af því tilefni ætla ég að skella mér á tjúttið í kvöld og halda upp á það að Krissi frændi minn á afmæli í dag. Til hamingju með afmæliðJ þar sem maður kemst ekki í party þá verður maður náttúrlega bara að búa sér til party.

Elfar bróðir er svo að koma í heimsókn til mín á morgunJJJ vá hvað ég hlakka til að sjá litla strákinn. Hann ver heim á miðvikudagsmorgun.

Svo er það London eftir vikuJ og Margrét Helga era ð koma með SNILDJ

En jæja ég nenni bara ekki að skrifa meira ætla að fara að skella mér í sturtu og gera mig klára fyrir tjúttiðJ

Hafið það gott elskurnar mínar.

Kv.SIV

Sigríður Inga Viggósdóttir
5 athugasemdir

Vill einhver skipta um eyru????

21. febrúar 2007 klukkan 21:37
:(  mig langar heim til mömmu og pabba núna og láta þau hjúkra mér. Mér er búið að vera illt í eyrunum núna í 2 daga og það er ömurlegt. Fór til læknis í morgun og fékk eyrnadropa og verkjatöflur þannig að vonandi get ég sofið ágætlega í nótt.
Og ég má ekki fara í íþróttir fyrr en eftir helgi:( Ég þakka nú samt fyrir að hafa stelpurnar hérna þær eru nú búnar að vera rosalega góðar við mig.
Vesta er samt að ég þarf að vera orðin hress annaðkvöld því þá eru krakkarnir að koma en ég er ekkert að sjá fram á það.  En við vonum nú samt það besta:)
Annars er búið að snjóa hérna í allan dag og það er búið að búa til risastóran snjókall út í garði:) 
Jæja nóg af þessu væli. Vona að þið hafið það gott ég ætla að fara að sofa í hausin á mér. Ekki veitir af.
Hafið þið það sem best reyni að seda eitthvað af þessum snjó til ykkar:) veit að það verða ekki allir ánægðir en ég veit um einn mann sem verður svoleiðis himinlifandi með það og hver er það nú annar en hann karl faðir minn:)

kv.SIV
Sigríður Inga Viggósdóttir
6 athugasemdir

Gleðilegan bolludag:)

19. febrúar 2007 klukkan 20:18

Jæja þá er langþráða þorrablótið afstaðiðL ummmm hvað það var gott að fá íslenskan mat. Hangikjöt, slátur, sviðasultu, rógustöppu, jafning, hákarl og tala nú ekki um lambalæriðJ

Það var hittingur heima hjá Sunnu og Jón reyni fyrir blótið og tókum við síðan strætó þar sem það var haldið.

Helga Braga fór að sjálfsögður á kostum með magadansi og öllu tilheyrandi. Svo tjúttuðum við af okkur rassinn á ballinu. Já ég er ekki frá því að hann hafi minkaðJ Ég og Margrét Helga fórum í smá spassakasst og fórum að taka fullt af myndum af okkur með íslenskafánan utan í einhverju fólki. Getið séð það á síðuni hennarJ

Það var algjör snild hvað það voru margir úr firðinum fagra þarna og að sjálfsögðu var undir blá hinmi tekin í fjöldasöng.

Þegar við vorum svo að fara heim þá gekk nú eitthvað erviðlega að fá taxa þannig að ég, Ingveldur, Hrannar og Guja (já sem átti heima á króknum) ákváðum að labba bara af stað heim. Eins og sannir íslendingar þá húkkuðum við okkur bara far heim. En það vildi nú ekki betur til en það að maðurinn sem skutlaði okkur heim var frá Líbanon ég get svo svarið það að við héldum að þetta væri okkar síðastaJ en við komumst nú samt heil heim og hann rukkaði okkur svo um 100danskar eins og hann væri einhver taxabílsstjóri. Svona glæpamenn.

Á sunnudaginn efndi Elín María svo til bolludagskaffi. Bollurnar urðu nú samt aldrei að bollumJ en smökkuðust eingu að síður frábærlega. Takk kærlega fyrir mig Elín mín.

Vill svo bara þakka öllum þeim sem voru á þorrablóti á lau kærlega fyrir skemmtunina þetta var algjör snild og legg ég til að við verðum einhverntíman með skagfirðingadjamm hérnaJ

Nú er aldeiliss farið að stittast í það að ísl.mafían komi. Við erum að tala um að Elvar sáli kemur á miðvikudaginn og svo koma hinir grislíngarnir á fimmtudaginn. SNILDDDDDDDDDD!!!!!!!!!!!! Vá ég hlakka svo mikið til að fá ykkur krúttin mín.

Jæja ég ætla að segja þetta gott núna. Það verður pottþétt fullt af góðum sögum í næsta bloggi því Kristín Lilja og Dóra Lind eru að koma í heimsóknJJJJ

Kv. SIV

ps.mig langar í bollurnar frá Ingu ömmu og saltkjöt og baunir.

Sigríður Inga Viggósdóttir
Almennt | 5 athugasemdir

Best að láta vita af sér.

13. febrúar 2007 klukkan 19:59

Ég er komin heim frá Austuríki. Er búin að vera síðustu 2 vikurnar á skíðum. Já mér er ekki búið að leyðast þar skal ég segja ykkur. Hvað er betra en að vera í sól og bongo blíðu að renna sér í ölpunum???? Nei ekki veit ég það.

Fyrri vikuna var allur skólin með en seinni vikuna vorum við 25. Ég komst heil heim og án skaða. En það voru svo sannarlega ekki allir svo heppnir einn sprengdi í sér milltað þegar við vorum búin að vera í svona 2 daga eða svo. Hann valid að fara ekki í aðgerð svo hann þurfti að liggja kyrr í 14 daga og má núna ekkert vera með í neinum íþróttum næstu 3 mánuðina. En hann er allur að hressast og er komin aftur í skólan. Svo voru nokkur hné sköðuð og tvær hendur brotnað. Þetta eru nú meiri klaufarnir sem eru hérna með mérJ

Ég er búin að læra alveg heilan helling á skíðum núna. Svoldið fyndið að fara til DK til að læra á skíði. En svona er þetta bara.

Ég man nú ekki eftir neinu merkilegu úr þessari ferð fyrir utan það að ég og Kristín María hlógum alveg óendalega mikið. Jú það er ein góð saga af Kristínu þegar henni tókst að frussa maionesi yfir allan matsalin þegar hún var að skera samlokuna sína og rakst í mæjoiðJJ Vá þetta var fyndið. Kannski ekki mjög fyndið svona á prennti. En hvað með það.

Guð ég er að gleyma! Ég vill bara óska henni Dagný Huld minni og fjölsk. Til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðlimin. Það kom lítil sæt stúlka í nótt (13.feb) kl.01:57. Til hamingju elskurnar mínar get ekki beðið eftir að sjá litlu prinsessunaJ

Ekki má heldur gleyma að óska Hildi og Skarphéðni til hamingju með sína prinsessu sem fæddist í gær (12.feb). Þær eru samtaka í þessu vinkonurnar.

Næst á daskrá hjá mér er það að það er hvorki meira né minna en ÞORRABLÓT um helginaJ já maður er aldeiliss búin að bíða spent eftir þessu blóti. Helga Braga er veislustjóri og sixties leikur fyrir dansi. Ekki slæmt það.

Það er upphitun og söngæfing í höllini hjá Sunnu Björk og Jón Ryeni um þrjúleytið og svo verður tekin strætó á staðinn. Blótið byrjar um sex. Þetta verður brjálað fjör. 

Svo er íslenska mafían að koma í heimsókn eftir rúma viku. Elvar sálufélagi verður fyrstur til að koma hann kemur á mið. eftir viku og svo koma hinir grislyngarnir á fim. Og fös. Ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur krakkar. Þetta verður snildar helgiJ

Jæja ætla að vara að gera eitthvað.

Hafið þið það nú gott dúllurnar mínar.

Kv. SIV

Sigríður Inga Viggósdóttir
Almennt | 4 athugasemdir

Á skíðum skemmti ég mér trallala............:)

26. janúar 2007 klukkan 18:50
Já elsku rúsínu dúllurnar mínar á meðan þið horfið á snjóin gufa upp hald þið þá að ég sé ekki bara að fara að skella mér upp í rútu eftir um 2 tíma og bruna til austuríkis á skíði:) já ekki leiðinlegt það:) ég verð í 2 vikur á skíðum váá hvað það verður gaman:) Bara snild.
Svo eru fleiri skemmtilegar fréttir Elfar litli sæti bróðir minn ætlar að koma í heimsókn til mín 3.mars og ég hlakka svo til að fá hann í heimsókn.
Annars hef ég ekkert mikið fleira í fréttum það er bara löng rútuferð framundan eða um 16 klukkutímar. Það gerist vart betrar og í tilefni þessara rútuferðar skellti ég mér í bæinn í gær og keypti mér i-pot:) guð hvað ég er glöð fyrir það.
Jæja ég heyri þá í ykkur eftir 2 vikur nú er ég löglega afsökuð að það líði langt á mili blogga:)
kv. SIV í AUS á skíðum:)
Sigríður Inga Viggósdóttir
Almennt | 7 athugasemdir

Dugnadur i blogginu hja minni:)

22. janúar 2007 klukkan 02:18
Jæja ta er tessi helgi senn a enda. A fos efndi eg til partys heima hja Margreti Helgu. Sunna Björk let sig nu ekki vanta i gledskapinn og svo dro eg natturlega Kristinu Mariu og Sigurlaugu Lilju med og vid tokum lika Emmu med i tetta skafirdingaparty. Helgi kom svo i bodid tegar hann var buin a æfingu og ekki ma gleyma tvi ad Bibbi rak inn nefid.
Vid forum svo i bæinn seinna um kvoldid og er ekki annad hæt ad segja ad tad hafi verid hrein snild. Sungum vid fylleris songva og vorum med almennt fylleris rofl og alles:) Sunna atti sam svo klarlega atridi kvoldsins tegar hun tok sig til og flaug a hausinn i rodini inn a gas. hehehehe djo hlogum vid af henni greyinu. Vona ad tu sert ekki med kulu Sunna min. Vid vorum sem sagt ad hita upp fyrir torrablotid sem verdur 17.feb og verdur engin onnur en Helga Braga veislustjori og Storhljomsveitin Sixties leikur fyrir dansi. Djofulsins snild verdur tetta. Mig minnir ad vid hofum rætt tad ad hittast heima hja Sunnu kl.15 og æfa song. Hun ætlar ad sja um ad utbua songbok og Jon Reynir leikur undir a gitar:) Tetta verdur spennandi.Ætladi bara ad taka tvi rolega i gær og klapa a video en nei nei ta komu fullt af krokkum i heimsokn sem voru herna fyrir aramot tannig ad eg neiddist til ad kikja ut en var samt bara frekar slok. Er svo buin ad vera ogedslega lot i dag og gera nakvæmlega ekki neitt. Eg lyg tvi nu tvi eg hennti inn linkum herna a heima siduna mina og svo er eg natturlega ad skrifa blogg nuna:)
Ætla ad segja tetta fint nuna heeyri i ykkur seinna.
Kv. SIV
Sigríður Inga Viggósdóttir
5 athugasemdir